Gestabók Gróco ehf.

Umhugsunarefni
Til að bregðast við gegnislækkun krónunnar ákváðum við að lækka verð á vörum og þjónustu.  Við buðum líka ríflega afslætti þeim sem vildu skipuleggja innkaup sín, taka færri sendingar og stærri, auk þess sem við höfum reynt að leiðbeina viðskiptavinum um val á ódýrari valkostum, þegar þeir hafa staðið til boða.  Þannig höfum við t.d. kynnt fjölmargar lausnir, m.a. frá Machery Nagel og New England Biolabs, sem gætu lækkað rekstrarkosntað rannsóknastofunnar um tugi ef ekki hundruðir þúsunda á ársvísu.  Við höfum líka aukið mjög framboð á hagstæðum tilboðum.  Þetta er verðstefna Gróco sem við kynntum fyrir ári síðan.  Flestir viðskiptavina okkar hafa tekið þessu frumkvæði vel og nýtt sér það sem er í boði, þeir eru þó nokkrir sem láta sér fátt um finnast, halda sínu striki, en kvarta jafnan yfir hvað allt sé orðið hrikalega dýrt.

Viðskiptavinir okkar eru okkur allt og við viljum allt fyrir þá gera, sem er í mannlegu valdi.  Án viðskiptavina væri Gróco ekki til.  En eins og okkur þykir vænt um viðskiptavini okkar þá valda þeir sumir okkur stundum töluverðum heilabrotum.  Þannig hringdi t.d. góður viðskiptavinur vegna tilboðs.  Sá hafði farið inn á heimasíðu viðkomandi birgja, skoðað listaverð vörunnar og trúði ekki hvað tilboðið var gott.  Hann ætlaði að hugsa málið.  Annar virðist á þeim buxunum að það sé betra að kaupa 10-20 ára gamlar pípettur á e-bay heldur en nýjar.  Þannig telur hann sig spara pening.  Enn annar taldi sig hafa gert góð kaup með því að semja beint við framleiðanda um kaup á miklu magni af greiningarsettum, en var ekki skemmt er hann þurfti að farga stórum hluta sendingarinnar, þegar settin höfðu fyrnst í hillunum hjá honum.

Það er eins og sparnaðaráform stjórnvalda rugli fólk í ríminu, en aðhald þarf að vera vel ígrundað, því sparnaður til skamms tíma getur þýtt kostnaðarauka þegar til lengri tíma er litið, ef fólk gætir ekki að sér.  Fólki er þó vorkunn því hjá stjórnvöldum eru ekki til neinar langtímaáætlanir og ekki gerðar neinar kostnaðargreiningar.  Þar spara menn aurinn og kasta krónunni.  Eftir höfðinu dansa limirnir.

Svona er óbærilegur léttleiki tilverunnar og við hjá Gróco höldum því bara áfram að gera eins vel og við getum, okkur og viðskiptavinum okkar til hagsbóta.  Meira getum við ekki gert.

Spilavíti
Áhugamenn um fjárhættuspil hafa viðrað hugmyndir um að opna hér spilavíti, eða casino.  Þeir óska eftir breytingum á spilalögjöfinni, hún sé hvort eð er meingölluð.  Jafnframt benda þeir á að starfsemi sem þessi sé atvinnuskapandi og myndi efla ferðamannaiðnaðinn, að ekki sé talað um ríflegar skatttekjur ríkissjóðs.

Iðnaðarráðherra og heilbrigðisráðherra voru beðnir að tjá sig um ágæti þessarar hugmyndar.  Iðnaðarráðherra taldi hugmyndina hafa kosti og galla(!), en heilbrigðisráðherra lagðist alfarið gegn henni, sem kom ekki á óvart.  Vinstri græn virðast óhagganleg í þeirri afstöðu að vera á móti nýsköpun í atvinnulífinu.

Forstöðumaður SÁÁ sér hugmyndinni allt til foráttu, enda fær hann alla spilafíklana í meðferð, ásamt með öðrum fíklum, en virðist gleyma að hluta peningana, sem spilafíklarnir sólunda, notar hann til að veita þessu sama fólki ráðgjöf og reka fyrir það meðferðarheimili.  Það er ekki öll vitleysan eins.

Málið er að fjárhættuspil eru stunduð af miklum móði í skjóli ríkisins.  Reyndar má færa fyrir því rök að Ísland hafi breyst í eitt allsherjar spilavíti upp úr síðustu aldamótum.  Allt um það.  Menn spila póker á netinu og í bakhúsum. Happdrætt og lottó eru ekkert annað en fjárhættuspil.  Það eru spilakassar í annarri hverri sjoppu, og m.a.s. reknar sérstakar spilakassamiðstöðvar í tenglsum við kráarekstur, sem hafa fengið hið frumlega nafn Gullnáman.  Hver er munurinn á þessum rekstri og casinorekstri?  Jú, dómsmálaráðherra hefur áhyggjur af því að í þessu tilfelli ætli einkaaðilar að græða á fjárhættuspili, en arður af núverandi starfsemi renni til stofnana, góðgerðarsamtaka og íþróttafélaga(!).

Fyrir nokkrum misserum var lausasala verkjalyfsins Parkódíns bönnuð.  Í ljós kom að nokkrir fíklar gengu á milli apóteka og hömstruðu Parkódín og sprautuðu sig til að komast í vímu.  Tóbak og áfengi er selt út um allan bæ, þótt ekki sé um það ágreiningur að þessir vímugjafar valdi meiri heilsufars- og félagslegum vandamálum en Parkódín.  Spilafíklar geta spilað frá sér ráð og rænu, hús, bíl og fjölskyldu, því að hluti ágóðans af fíkn þeirra fer í að efla góðgerðar- og íþróttastarf.  Og svo greiða þeir fyrir meðferðina í leiðinni. Er ekki íslensk þjóðmálaumræða uppbyggileg og hressandi?

Góða helgi og gangið hratt um gleðinnar dyr inn í óbærilegan léttleika tilverunnar.

Meltdown Iceland
Hlustaði á tvo miðaldra fréttahauka tjá sig um spillingu á Íslandi.  Þeim var mikið niðri fyrir eins og þeir hefðu höndlað hinn stóra sannleik og vildu deila honum með þjóðinni.  Þeir bentu m.a. á að niðurstöður mælinga, sem sýndu að Ísland væri í hópi þjóða þar sem minnsta spillingu væri að finna,  væru í besta falli tálsýn í versta falli uppspuni.  Stofnunin sem framkvæmir mælingarnar, Transparancy International, væri frekar vafasöm og í raun hægt að panta sér hagstæða og trúverðuga niðurstöðu.  Það er hins vegar athyglisvert að þegar Transparancy International birtir niðurstöður sínar um hið fróma Ísland þá er þeim slegið upp sem stórfrétt í öllum fjölmiðlum eins og menn  á þeim bæjum trúi þessum niðurstöðum.  Það vita jú allir Íslendingar sem vilja vita að íslenskt samfélag er gjörspillt, e.t.v. ekki á mælikvarða þróunarríkja, þar sem stjórnamálamenn raka saman þjóðarauðnum og safna í gullkistur sínar og hinu opinbera er stýrt af mútuþægum embættismönnum, en spillt engu að síður.

Roger Boyse segir frá upplifun sinni af íslensku samfélagi í spennutryllinum Meltdown Iceland.  Hann rekur m.a. sögu lýðveldisins, ættarveldin og tengsl þeirra við stjórnmálaelítuna,  helmingaskiptaregluna, pólitísku embættisveitingarnar, kvótaruglið, hvernig hagsmunir viðskiptablokka og stjórnmálamanna voru samtvinnaðir, sem að lokum kristallaðist í sölu ríkisbankanna og náðu nýjum hæðum í íslenska efnahagsundrinu.   Boyse er ómyrkur í máli, kemst að þeirri niðurstöðu að helst megi líkja skipan mála á Íslandi við annað eyríki, Sikiley, nema að Íslendingar beri meiri virðingu fyrir mannslífum en íbúar þar.  Málið er að Boyse komst ekki að þessari niðurstöðu hjálparlaust, hann naut aðstoðar heimildarmanna.  Við höfum nefnilega öll verið og erum meðvituð um hvernig málum er háttað á Íslandi, nema þeir sem er í bullandi afneitun.  Flest okkar eru ekki í aðstöðu til að gera neitt í málinu, hin annað hvort þora því ekki, eða vilja ekki vagga bátnum, það gætu jú hrokkið bitar af gnægtarborði spillingarinnar í fangið á þeim.  Og þegar kerfi samtryggingarinnar hrinur, hverjir eiga þá að axla ábyrgðina og borga brúsann?  Almenningur.  C‘est la vie myndi Rémi sjálfsagt segja.

Merkilegt hvað bók Boyse hefur fengið litla umfjöllun hér á landi.  Finnst okkur sannleikurinn svona óþægilegur, eða er það vegna þess að hann er útlendingur og getur því ekki haft skoðun eða vit á því sem gerist í íslensku samfélagi?

Glöggt er gests augað.